Sunday, December 1, 2013

Hér skal bloggað

Hjartanlega velkomin!

Brottfarardagur nálgast óðfluga svo mér þótti ekki seinna vænna en að skella í eina bloggsíðu. 

Þann 14. janúar nk. hefst ferðalagið mitt til Mexico þar sem ég mun dvelja í 6 mánuði. Ég er að fara sem sjálfboðaliði á vegum AUS (Alþjóðleg Ungmennaskipti) og hef valið að vinna með börnum. 

Hér mun ég svo lýsa ævintýrinu í máli og myndum svo þeir sem vilja geti fylgst með :)

Meira seinna!